útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það voru nokkur atriði þar sem hægt er að taka undir. En til þess að ná þeim markmiðum sem hv. þingmaður talaði um í ræðu sinni, þ.e. varðandi það hvernig Flokkur fólksins vill ná sínum markmiðum fram, mun Flokkur fólksins þá styðja þetta frumvarp þó að breytingartillögurnar verði ekki samþykktar? Ég áttaði mig ekki alveg á því hvort þetta væri þó alla vega skref í rétta átt. Ef þetta frumvarp og mögulega eitthvað í framkvæmdinni eins og hún er í dag — hv. þingmaður talaði um móttökubúðir og annað, hvort það sé eitthvað fleira í framkvæmdinni sem gæti sett okkur á betri stað í þessum málaflokki.