153. löggjafarþing — 53. fundur,  23. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:18]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég heyri að hv. þingmaður telur að ganga þurfi lengra. Ég spyr samt áfram hvort hann telji ekki eitthvað í þessu frumvarpi til bóta og hvernig það geti þá unnið með framkvæmdinni. Það var einmitt hin spurningin mín áðan hvort það er eitthvað við framkvæmdina, sem þarf kannski ekki lagabreytingu eða kemur í framhaldi af þessari lagabreytingu, sem gæti gert hlutina skilvirkari og kannski komið í veg fyrir að fólk sjái þessa glufu að koma hingað út af því að lögin eru öðruvísi, hvort hægt sé að bæta það með framkvæmdinni. Ég spyr líka hvort hv. þingmaður telji að úrskurðir úrskurðarnefndarinnar um Venesúela standist íslenska löggjöf eins og hún er í dag.