153. löggjafarþing — 53. fundur,  23. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:19]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta allsh.- og menntmn. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Samkvæmt löggjöfinni í dag getur einstaklingur með alþjóðlega vernd komið til Íslands og sótt um alþjóðlega vernd, hann getur fengið alþjóðlega vernd númer tvö. Segjum að þessi einstaklingur með alþjóðlega vernd sé í Grikklandi og sé mjög ósáttur við ástandið þar. Þá getur hann komið til Íslands og sótt um dvalarleyfi. Það er miklu betra að sá einstaklingur sem er þegar kominn með alþjóðlega vernd, og er ekki flóttamaður samkvæmt skilgreiningunni, af því að hann er búinn að fá alþjóðlega vernd, komi til Íslands og sæki um dvalarleyfi, verandi með alþjóðlega vernd í Grikklandi. Það er miklu einfaldara, þessi regla á að fara út. Ég tel að þessi 12 mánaða regla sé eitt mesta bull í íslenskri stjórnsýslu sem ég hef séð. Ef ekki er búið að afgreiða málið innan 12 mánaða þá á að íþyngja íslenskri stjórnsýslu enn þá meira og neyða hana til að taka mál til efnismeðferðar, jafnvel þótt ekki sé þörf á því. Þessi útfærsla í frumvarpinu hvað það varðar er alveg út í hött.

Það er mjög gott að innan 12 mánaða verði áhrif þessa frumvarps skoðuð. (Forseti hringir.) Þetta mál er ekki að fara frá okkur með þessu frumvarpi, það er alveg pottþétt mál. Þetta mun verða áfram í umræðunni af því að þetta frumvarp (Forseti hringir.) gengur ekki nógu langt og tekur ekki á vandamálinu.