útlendingar.
Forseti. Ætli það séu ekki um 100 milljónir einstaklinga á flótta þessa dagana, þar af u.þ.b. helmingur börn. Í því samhengi veltir maður fyrir sér, þegar hér er verið að nefna tölur um kannski 4.000 manns á ári, hvort við séum að gera það sem hv. þingmaður nefndi nóg. Honum varð tíðrætt um það og sagði margsinnis: Við ráðum ekki við þetta. Þá spyr maður: Við hvað ráðum við? Við erum í afbrigðilegu ástandi þar sem við erum búin að bjóða fólki frá Úkraínu að koma hingað og það vegur u.þ.b. helming af þeim hópi sem nú er að koma tímabundið til Íslands. Ég spyr. Við hvaða ráðum við? Erum við að tala um 500 manns, 1.000 manns, eða getum við ekki nokkurn skapaðan hlut?