153. löggjafarþing — 53. fundur,  23. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:23]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Ég hjó líka eftir því í ræðu hv. þingmanns að mér fannst liggja í loftinu að það ætti að fara að draga til baka úrskurð kærunefndar útlendingamála um að heimila fólki frá Venesúela að dvelja á Íslandi. En ég vil bara vekja athygli á því að í kærunefnd útlendingamála sitja sjö lögfræðingar. Þar af eru þó nokkrir sem eru skipaðir af dómsmálaráðuneyti, einhverjir af Mannréttindaskrifstofu Íslands, þannig að þar ætti að vera þekking til staðar. Maður þarf ekki að gúgla mikið til að átta sig á því að það eru dauðasveitir í Venesúela sem fara út á göturnar og drepa fólk. Árið 2018 voru 7.000 manns drepnir af dauðasveitunum, u.þ.b. 20.000 manns hafa verið drepnir frá 2016–2019 af þessum svokölluðu dauðasveitum. Þannig að fólk flýr ekkert ástandið í Venesúela bara af því að það vill hafa það næs á Íslandi.