útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir frábæra spurningu. Nei, það er enginn tvískinnungur í því vegna þess að það sem er verið að gera með þessu frumvarpi er að það er verið að lögfesta ólögmæta framkvæmd Útlendingastofnunar. Ég hef verið mjög gagnrýnin á framkvæmd Útlendingastofnunar vegna þess að ég tel hana ólögmæta og það hefur verið staðfest í mörgum tilvikum fyrir kærunefnd útlendingamála, fyrir dómstólum, þá sjaldan flóttafólk nær máli sínu fyrir dóm. Nei, alls enginn tvískinnungur í því, fullkomið samræmi þar.
Aftur varðandi Noreg, þá var frumvarpið árið 2016 einmitt samið mikið til með hliðsjón af lögum í Noregi og ef eitthvað er þá snýst þetta frumvarp um að færa okkur fjær. (Gripið fram í: Að herða.)Ég vil til dæmis vekja athygli á því að hér hefur verið ítrekað talað um, meðal annars af hálfu hv. þm. Eyjólfs Ármannssonar, sérreglur í íslenskum lögum sem til dæmis gera það að verkum að við tökum til efnismeðferðar umsóknir fólks sem þegar hefur fengið veitta vernd í öðrum ríkjum. Það er rétt að við erum með sérákvæði. En það er svo skemmtilegt að þrátt fyrir að Noregur sé ekki með slíkt sérákvæði þá senda þau samt ekki allt fólk sem sækir um vernd þar og hefur áður fengið veitta stöðu flóttamanna í Grikklandi til dæmis, þau senda þau ekki öll aftur til Grikklands (Gripið fram í: ... miklu færri slíkar umsóknir.) (Forseti hringir.) Ég þekki það ekki. Það sem hins vegar þau byggja á er að það sé brot á mannréttindum fólks að vera sent til Grikklands. Þau eru ekki einu sinni með sérákvæði eins og við. En þau eru samt í rauninni linari en við.