útlendingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Samkvæmt tölum frá ríkislögreglustjóra fyrir árið 2022 komu um 1.000 manns frá öðrum löndum en þessum tveimur sem við ræddum hér, þ.e. Úkraínu og Venesúela, hvaðan íbúar eru metnir í hættu, þurfa að óttast um líf sitt og velferð og eru þess vegna skilgreindir sem flóttamenn og uppfylla skilyrði flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna. Ef þessi tala, 1.000, er borin saman við tölur fyrri ára þá virðist sem flóttamönnum sé að fækka, þ.e. öðrum en frá þessum tveimur ríkjum. Ég spyr aftur: Ef við horfum ekki á þetta út frá kerfunum okkar heldur eingöngu út frá reglum alþjóðasamfélagsins, getum við lokað landamærunum og neitað fólki um að sækja hér um vernd? Er það hægt? Ég er oft spurð að þessu: Hvað vilt þú taka á móti mörgum? Getum við svarað þessu?