153. löggjafarþing — 53. fundur,  23. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[19:35]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir andsvarið. Já, það er ýmislegt í þessu frumvarpi sem ég tel að muni leiða til skertrar skilvirkni vegna þess að það flækir og þyngir meðferð þessara mála. Þar held ég að muni vega þyngst þessi ákvæði um sviptingu þjónustu. Ákvæðið eins og það er sett fram í þessu frumvarpi er annars vegar mjög óljóst, mjög matskennt, það leggur í hendur fulltrúa sem vinna hjá Útlendingastofnun, sem eru oftast bara ungir lögfræðingar og aðrir sem eru að vinna málin, að taka ákvörðun um það að einhver einstaklingur verði sviptur algerri grunnþjónustu, sem er í raun ekki hægt að kalla þjónustu heldur bara algjöra lágmarksaðstoð við það að halda sér á lífi. Ég held að það verði þungt í vöfum. Ég held að nú þegar sé ástæðan fyrir löngum málsmeðferðartíma hjá Útlendingastofnun oft sú að þetta eru erfið mál. Fólk á erfitt með að taka þessar ákvarðanir, það er erfitt og þungt í vöfum. Þessar ákvarðanir munu verða kærðar, þær munu fara fram og til baka í kerfinu. Fólkið mun þurfa að sækja um aðstoð sem útlendingar í neyð. Þetta ákvæði bara verður, ég ætla bara að leyfa mér að segja það, algjört fíaskó. Þetta er það sem ég held að muni skerða skilvirkni einna mest. En þá er ég bara að nefna eitt dæmi. Ég get alveg nefnt fleiri ef hv. þingmaður hefur áhuga á.