153. löggjafarþing — 53. fundur,  23. jan. 2023.

dagskrártillaga.

[19:41]
Horfa

Forseti (Diljá Mist Einarsdóttir):

Forseta hefur borist eftirfarandi dagskrártillaga og eftirfarandi bréf:

„Undirrituð gerir það að tillögu sinni, í samræmi við 1. mgr. 77. gr. laga um þingsköp Alþingis, að á dagskrá næsta fundar verði þau dagskrármál sem forseti Alþingis leggur til, að því undanskildu að út af dagskrá fundarins verði tekið 322. mál, frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, alþjóðleg vernd. Ég óska eftir því að þessi tillaga verði borin upp til afgreiðslu í samræmi við áðurnefnda grein þingskapa.“

Undir þetta bréf ritar Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir.

Þessi tillaga verður borin upp til atkvæða í upphafi næsta þingfundar.