153. löggjafarþing — 54. fundur,  24. jan. 2023.

Frestun á skriflegum svörum.

[13:32]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hafa bréf frá félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 609, um fylgdarlaus börn, frá Evu Sjöfn Helgadóttur, á þskj. 742, um skipulag og stofnanir ráðuneytisins, frá Diljá Mist Einarsdóttur, og á þskj. 793, um stöðu heimilislauss fólks, frá Lenyu Rún Taha Karim.