Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég vil ræða um erfiðu konurnar sem við sem samfélag eigum svo margt að þakka. Orðræðan um erfiðu konuna er þekkt kúgunartæki; gamlar hugmyndir um mismunandi hlutverk og eðli kynjanna, t.d. að tileinka skynsemi körlum en tilfinningasemi konum. Gagnrýni er karllæg og órökvísi er kvenlæg. Karlar eiga heima í atvinnulífinu og konur í þjónustustörfum. Sem betur fer erum við komin langt frá þessum skilgreiningum í nútímanum en betur má ef duga skal. Enn þá heyrum við í umræðunni að á bak við sjálfan forsætisráðherra sé raunverulega einhver karlkyns ráðherra við stjórnvölinn. Það er skömm að slíkum málflutningi.
Nýlegt dæmi sýnir okkur að við megum aldrei sofna á verðinum þegar kemur að jafnrétti og kvenvirðingu. Þótt við höfum náð langt í því að segja feðraveldinu til syndanna er stutt í orðræðuna um erfiðu konuna. Ég leyfi mér að vitna í stuðningsyfirlýsingu Samtaka kvenna í kvikmynda- og sjónvarpsiðnaði á Íslandi, WIFT, með leyfi forseta:
„Karlmenn sem gefa gera kröfur til samstarfsfólks eru leiðtogar. Konum er refsað fyrir sömu kröfur. Þær eru jafnvel flokkaðar sem erfiðar að vinna með.“
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur ötullega stutt við íslenska kvikmyndagerð. Við verðum að gera þá kröfu að þessi stétt sé ekki undanskilin þegar kemur að jafnrétti kynjanna.