Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég hef í nokkur skipti notað þennan vettvang til að ræða hér nýjustu árás Rússlands á Úkraínu, árás sem hefur vakið sumar Evrópuþjóðir af værum svefni. Sumar sváfu að vísu enn fastar en aðrar. Ég veit að ég hef skammast áður yfir aðgerðum forystumanna í Evrópu sem eru ábyrgir fyrir þeirri stöðu að álfan varð háð Rússlandi um orku þannig að orkukreppa ríkir nú á meginlandinu og ég geri það aftur og áfram nú þegar böndin beinast að þeim. Þegar tæpt ár er liðið frá nýjustu innrásinni sem kostar Úkraínumenn fjölda mannslífa á hverjum degi hefur ákall þeirra enn aukist um að Þjóðverjar útvegi þeim nauðsynlegan búnað til að verjast. Þjóðverjar hafa verið tvístígandi og það þrátt fyrir að Bretar hafi sent þeim og öðrum skýr skilaboð með ákvörðun sinni um viðbótarstuðning í formi búnaðar. Viðbrögð forystumanna ESB, ekki síst Þýskalands, við innrásinni á Krímskaga og hátterni þeirra. bæði fyrir og eftir, eru forkastanleg og hafa tvímælalaust átt sinn þátt í því að Pútín afréð að láta til skarar skríða. Yfirlýsingar þeirra frá því árásin var gerð í fyrra gáfu góða von um að þeir hefðu lært af mistökum sínum en þeir verða bara dæmdir af verkum sínum.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með nágrannaþjóðum Úkraínumanna sem eru jú nær ógninni en við. Aðgerðaleysi mun ekki leiða til neins annars en frekari hörmunga og Þýskaland verður að bæta fyrir athafnir en ekki síst fyrir athafnaleysi sitt undanfarin ár. Annars er hætta á að Úkraína verði bara byrjunin á efndum Pútíns á langtímastefnu hans.