Störf þingsins.
Herra forseti. Í gær spurði ég hæstv. fjármálaráðherra um það mál sem hv. þm. Bergþór Ólason fór ágætlega yfir hérna áðan. Hæstv. ráðherra lýsti því nokkuð afdráttarlaust yfir að hann teldi mjög varhugaverð áform forsætisráðherrans í þessu efni. Hann galt við því varhuga og skyldi engan undra hefði maður nú einhvern tímann haldið. Þingmenn verða að vera á varðbergi. Síðast í gær, í framhaldi af þessari fyrirspurn í þinginu, heyrði ég viðtal við hæstv. forsætisráðherra á Bylgjunni sem virtist eingöngu hafa haft forherst í afstöðu sinni til málsins og sagði að fjármálaráðherra þyrfti líklega að fara á hatursorðræðunámskeið. Sjálfur hafði forsætisráðherrann lýst því viku áður að ráðherra vissi ekki hvað fælist í því sem ætti að kenna, þyrfti sjálfur að fara á námskeið. Þetta hlýtur að vera okkur áhyggjuefni. Allir hljóta að vera á móti raunverulegri hatursorðræðu en við höfum séð ótal dæmi um það í öðrum löndum og í gegnum tíðina að þegar búið er að búa til verkfærin, tækin fyrir stjórnvöld til að hafa stjórn á umræðu í krafti þess að verið sé að koma í veg fyrir óæskilega umræðu af einhverjum ástæðum, þá er skilgreiningin jafnan víkkuð út. Nú blasir við sú hætta hér í þinginu að hæstv. forsætisráðherra keyri þetta mál í gegn og Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur feli sig einu sinni sem oftar og vonist bara til að þetta líði hjá, leyfi jafnvel einhverjum þingmönnum sínum að greiða atkvæði gegn málinu í trausti þess að þá komi stjórnarandstaðan og hjálpi til við að innleiða vitleysuna. Þess vegna hvet ég hv. stjórnarandstöðuþingmenn ekki síst til að hafa varann á hvað þetta mál varðar. Viðreisn sem oft kennir sig við frelsi hlýtur að láta það ná til fleiri þátta en óhefts innflutnings á hráu kjöti, hlýtur að vilja verja grundvallarmannréttindi eins og þau að stjórnvöld (Forseti hringir.) skikki ekki opinbera starfsmenn og jafnvel kjörna fulltrúa á námskeið (Forseti hringir.) um hvað þeir megi segja og hvernig þeir megi hugsa.