Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Ég kem hér upp til að ræða mál sem nokkuð hefur verið til umræðu í fjölmiðlum og annars staðar að undanförnu, en það er reglugerðarbreyting hæstv. dómsmálaráðherra sem leyfir lögreglumönnum að bera rafbyssur sem hann kallar rafvarnarvopn. Í réttarríki hafa þeir einir heimildir til valdbeitingar sem hafa það eftir lögum, iðulega er það lögregla eða her þar sem það á við. Ég er mjög hugsi yfir því að heimildin sé eins og hún er í reglugerð, auðvitað byggir hún á lögum en ég er mjög hugsi yfir því að það sé einfaldlega hægt að tilkynna í rauninni að það megi innleiða rafbyssunotkun hjá íslensku lögreglunni. Nú hefur hæstv. dómsmálaráðherra sagt í fjölmiðlum og á þingnefndarfundum að honum hafi fundist þetta mjög lengi og menn hafi bara mátt gera sér grein fyrir að þetta yrði gert. Það eru engin rök. Það eru engin rök í lýðræðisríki og það eru engin rök sem halda, enda hefur nú umboðsmaður Alþingis ritað hæstv. dómsmálaráðherra bréf þar sem m.a. er spurt hvaða mat hafi farið fram við þessa ákvörðun. Þar liggur hundurinn vísast grafinn. Svo má auðvitað líka nefna að samkvæmt 6. gr. laga nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands, þá flokkast þessi ákvörðun alveg örugglega undir stjórnarmálefni sem eiga heima á ríkisstjórnarfundi, til umræðu þar og samráðs. Ég velti fyrir mér hvert þetta gæti leitt, af því að ef hægt er að leyfa rafbyssur með þessum hætti þá er hægur leikur að leyfa annan vopnaburð.