153. löggjafarþing — 54. fundur,  24. jan. 2023.

Störf þingsins.

[14:13]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P):

Virðulegi forseti. Fyrir nokkuð mörgum árum vann ég í grennd við Austurvöll. Á þeim tíma fékk ég mótmæli búsáhaldabyltingarinnar beint í æð. Í kjölfarið tók við ný ríkisstjórn og margar erfiðar aðgerðir til að bæta stöðu ríkissjóðs. Ein af þeim aðgerðum var að þrengja möguleika þolenda ofbeldisbrota til að sækja bætur úr ríkissjóði. Lögin fjalla um lágmark og hámark bóta sem fást greiddar úr ríkissjóði. Niðurskurðurinn fólst í því að lágmarkið var hækkað töluvert sem leiddi til þess að þeir þolendur ofbeldisbrota sem fengu dæmdar bætur undir lágmarkinu gátu ekki lengur sótt þær til ríkissjóðs. Nú þegar rúmlega áratugur er liðinn er búið að afnema allar aðgerðir til að bæta stöðu ríkissjóðs í kjölfar hrunsins nema þessa. Samkvæmt svari við nýlegri fyrirspurn er um helmingur umsókna til bótasjóðs af hálfu þolenda kynferðisofbeldis og heimilisofbeldis, sem óhætt er að segja að sé fólk í afar viðkvæmri stöðu. Það er þyngra en tárum taki að þessi viðkvæmi hópur sé sá eini sem enn er að taka á sig högg vegna bankahrunsins. Það er enn sorglegra í ljósi þess að um er að ræða lágar fjárhæðir og sparnaðurinn óverulegur fyrir ríkissjóð. Við ættum frekar að vera að taka utan um þennan hóp og styðja. Því hef ég lagt fram frumvarp sem lækkar þetta lágmark töluvert til að grípa fleiri þolendur ofbeldisbrota. Ég hvet hv. þingmenn til að kynna sér frumvarpið og styðja það þegar það verður tekið fyrir í þingsal.