153. löggjafarþing — 54. fundur,  24. jan. 2023.

frumvarp um útlendinga.

[14:21]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Já, sýndarmennska. Það er svo sem hægt að deila um hvernig fólk túlkar þetta orð, sýndarmennska, og hvað það þýðir. En hér inni í þessum sal er stjórnarandstaða og það eru flokkar sem brenna fyrir þessum málefnum og finnst mikilvægt að koma sínum sjónarmiðum á framfæri, taka þátt í lýðræðislegri umræðu hér og nýta þau verkfæri sem þeir hafa, sem eru ekkert rosalega mörg sem stjórnarandstaðan hefur til að hafa áhrif á gang mála á þessu þingi af því að það er meirihlutaræði. Meiri hlutinn ræður þessu bara. Það að við nýtum okkur þau verkfæri sem við höfum til þess að reyna að hafa áhrif á málsmeðferð stórra mála — eins og málsins sem við erum að fjalla um í dag, útlendingamálsins, sem við teljum að skerði mannréttindi hóps fólks sem er mjög jaðarsettur á Íslandi — er ekki sýndarmennska, forseti. (Forseti hringir.) Þetta eru einstaklingar, þingmenn, sem eru hér inni að tala fyrir máli sem þeir brenna fyrir í þeirri von (Forseti hringir.) að þeir geti fengið stjórnarliða til að sjá ljósið og hætta þessum farsa. Það er ekki sýndarmennska. (Forseti hringir.) Það er bara hjartað hérna í pontunni, á erminni og ég frábið mér að talað sé um einhverja sýndarmennsku.