frumvarp um útlendinga.
Herra forseti. Ég vil gjarnan koma hingað upp, kannski í fyrsta lagi til að fá að leiðrétta í hvaða samhengi ég notaði orðið sýndarmennska sem var beint gegn orðum hv. þm. Gísla Rafns Ólafssonar þar sem hann sagði að það væri til að mynda verðbólga hér á landi og að mörg mál á Íslandi væru mikilvægari en þetta mál. Honum er frjálst að hafa þá skoðun en mér leiðist almennt smá þegar verið er að ýja að því gagnvart almenningi að þingið sé ekki þannig upp byggt að hægt sé að ræða mörg mikilvæg mál í einu. Þetta er iðulega notað t.d. gegn frelsismálunum. Alltaf þegar eitthvert frelsismál er sett á dagskrá þá heyrist iðulega einhvers staðar: Er þetta það mikilvægasta sem er gert á Alþingi? — þegar við hér inni vitum öll að það er vel hægt að gera marga góða hluti í einu.
Vegna orða hv. þm. Halldóru Mogensen vil ég gjarnan fá að segja aftur: Ég var ekki að nota orðið sýndarmennska í neinu öðru samhengi og finnst sjálfsagt að stjórnarandstaðan noti þau tæki sem hún vill og noti rödd sína í þessum mikilvæga punkti. En ég stend við þá skoðun mína að mér fellur ekki lýðræðisleg sjálftaka, sem felst í því að krefjast þess trekk í trekk að mál sem fólki hugnast ekki séu tekin af dagskrá.