Niðurstöður COP27.
Hæstv. forseti. 27. ráðstefna aðildarríkja loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna sem fram fór í Sharm El-Sheikh í lok síðasta árs skilaði litlum áþreifanlegum árangri, hvað þá aðgerðum, til að koma í veg fyrir hamfarahlýnun. Verði núverandi aukningu losunar gróðurhúsalofttegunda ekki stöðvuð og svo minnkuð hratt stefnir í að meðalhiti á jörðinni hækki um 2,8°C. Hann hefur nú þegar hækkað um rúmlega 1°C og afleiðingarnar láta ekki á sér standa. Fyrir sjö árum náðist í París samstaða um það mikilvæga markmið að halda hlýnuninni innan við 1,5°C. Það er okkur öllum lífsnauðsynlegt ef við viljum ekki festast í vítahring veðurfarsbreytinga sem leiða til óafturkræfra breytinga á lífsskilyrðum á jörðinni, svo vitnað sé beint í stöðumat loftslagsráðstefnu frá 8. desember sl. Þar kemur einnig fram að haldist losun gróðurhúsalofttegunda óbreytt muni meðalhitinn hækka um 1,5°C eftir einungis sjö ár.
Forseti. Ekkert okkar vill búa í heimi þar sem meðalhitinn hefur hækkað um 3°C með tilheyrandi afleiðingum; hitabylgjum, þurrkum, uppskerubresti, vatnsskorti, gróðureldum, flóðum og hækkandi sjávarmáli, svo fátt eitt sé nefnt. Þetta er óskemmtileg upptalning en nauðsynleg áminning í þessari umræðu. Einu jákvæðu fréttirnar frá COP27 voru að ákveðið var að setja á fót sérstakan loftslagshamfarasjóð sem kenndur er við tjón og tap, til að fjármagna bráðnauðsynlegar aðgerðir í fátækum ríkjum vegna þeirra loftslagsbreytinga sem þegar eru orðnar. Það er umhugsunarefni hvaða olíu- og gasframleiðendur eru enn í sterkri stöðu á vettvangi loftslagssamningsins, svo sterkri að forseti næsta COP, sem haldið verður í Dubai, er forstjóri hins ríkisrekna olíufélags Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Ég segi eins og maðurinn sagði: Það er ekki hægt að búa þetta til.
En snúum okkur að verkefni Íslands. Sjálfstætt landsmarkmið um 55% samdrátt í losun fyrir 2030 er í hættu. Önnur losun sem samið hefur verið um er innan viðskiptakerfis ESB en engar upplýsingar liggja fyrir um hlutdeild Íslands í þeim samdrætti. Í stöðumati loftslagsráðs kemur fram að markmiðið um 55% samdrátt í losun sé orðið verulega tvísýnt eða eins og þar segir, með leyfi forseta:
„Um bæði markmiðin gildir, að óútfært er af Íslands hálfu hvernig þeim skuli náð. Loftslagsráð hefur áður bent á að markmið Íslands um samdrátt í losun séu óljós. Þau eru enn óljós.“
Ofan á þetta bætist að nýbirt gögn Hagstofunnar sýna að heimilin greiða meiri hluta umhverfisskatta hér á landi eða 59%, eitt hæsta hlutfall í Evrópu. BSRB hefur nýlega vakið athygli á þessu. Árið 2020 greiddu íslensk heimili 32 milljarða kr. í umhverfisskatta, en atvinnulífið og erlendir aðilar 22 milljarða kr. Það er í engu samræmi við losunina því að atvinnulífið ber ábyrgð á tæplega 90% losunar hér á landi en heimilin tæplega 10%. Þessar staðreyndir sýna okkur svo ekki verður um villst að þörf er á því að gera kerfisbreytingar í atvinnulífinu og minnka áhersluna á baunatínsluna sem endurspeglast í skattlagningu almennings. Það væri í anda réttlátra umskipta.
Hæstv. forseti. Við stöndum frammi fyrir risastóru verkefni. Það er flókið en það er gerlegt. Það sem til þarf er skýr pólitísk sýn ásamt aðgerðaáætlun sem er bæði mæld í tíma og aðgerðum og stenst og um það hvernig við náum þeim markmiðum sem sett hafa verið og við þurfum líka gegnheilan pólitískan vilja til að fjárfesta margfalt í lausnum og kerfum sem gera okkur óháð jarðefnaeldsneyti. Við erum í einstakri stöðu og okkur ber að nýta hana.
Því spyr ég hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: Telur hann markmið Íslands í loftslagsmálum fullnægjandi? Hvernig hyggst ríkisstjórnin ná markmiðum um 55% samdrátt í losun fyrir 2030? Hyggst Ísland taka þátt í fjármögnun alþjóðlegs hamfarasjóðs sem samþykkt var að stofna á COP27 og hver verða samningsmarkmið og framlag Íslands til næstu loftslagsráðstefnu, COP sem er númer 28 og haldin verður í Dubai?