Niðurstöður COP27.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. málshefjanda fyrir að taka þetta mál hér upp í þinginu. Ég var einn af þeim sem var í hópi þingsins sem fór á loftslagsráðstefnuna í Sharm El-Sheikh í Egyptalandi. Ég sagði þar í panel að þarna væru menn komnir saman í 27. lokatilraun til að bjarga heiminum og alltaf væri þessi heimsendir svona sex til átta ár fram undan okkur. En það sem mig langar að segja hér í þessari fyrri ræðu minni í umræðunni er að lýsa uppákomu sem ég varð vitni að og við þingmennirnir sem þar sátum í tengslum við fund Alþjóðaþingmannasambandsins, IPU, þar sem þingmenn úr öllum heimshornum koma saman, hópur sem ætti að vera kyndilberi lýðræðis og gegnsæis. Þar voru lögð fram drög að ályktun fyrir hópinn áður en að fundinum kom. Síðan leið og beið, fundurinn hafði sinn gang og þegar styttist í lok hans kemur einhver kontóristi frá IPU og les töluvert miklar breytingar á ályktuninni sem voru þeirrar gerðar að það var alveg fráleitt að maður gæti einu sinni leyft sér að sitja hjá heldur var ætlun mín að taka umræðu um þetta og greiða atkvæði gegn ályktuninni eins og hún lá fyrir. Hvað gerðist svo? Kontóristinn labbaði niður og upp kom forseti IPU, sagði nokkur orð og sleit fundi og þar með var þessi ályktun Alþjóðaþingmannasambandsins, IPU, samþykkt. Ég hef aldrei orðið vitni að öðrum eins vinnubrögðum. Og það að verða vitni að þessu með slíkum hætti hjá Alþjóðaþingmannasambandinu fær mann til að velta fyrir sér með hvaða hætti eitt og annað á sér stað í pylsugerðinni, því að eins og Bismarck sagði forðum þá væru líkindin með lagasetningu og pylsugerð þau að það væri mönnum best að sjá sem minnst af framleiðslunni. Ég held því miður að ályktanir sem komu frá Sharm El-Sheikh í þessu tilfelli hafi að einhverju marki litast af þessum vinnubrögðum IPU, alla vega hvað sýn mína varðar á þessi mál.