útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég á það til að vaða úr einu í annað í þessum málaflokki þar sem ég hef svo margt að segja að ég veit stundum ekki alveg hvar ég á að byrja og hvað þá hvar ég á að enda. Spurning mín var því kannski ekki alveg nógu skýr. Það sem ég velti fyrir mér er að einu svörin sem við fáum frá ráðuneytinu, þegar við reynum að komast að því hverjar afleiðingarnar verða raunverulega ef fólk fer ekki í kjölfar þjónustusviptingarinnar, eina svarið sem við fáum er: Þau eiga bara að fara. Ókei, en hvað gerist ef þau fara ekki? Þau eiga bara að fara. Í ljósi þess hve stór hluti umsækjenda, það eru börn, það er fólk með einhverja sjúkdóma í sérstaklega viðkvæmri stöðu og annað sem er undanþegið þessari þjónustusviptingu samkvæmt þessu ákvæði, börn og fjölskyldur þeirra, í rauninni allir tengdir þeim, heimilismenn, eru undanþegnir, og í ljósi þess að einhverjar líkur eru á því að fólk eigi enn rétt á einhverri þjónustu, bara öðru kerfi: Telur þingmaðurinn að þetta ákvæði muni þrýsta á fólk að fara? Mun fólk eitthvað fara ef það fer ekki nú þegar? Þetta eru 8.000 kr. á viku og dregin úr þér tönn þegar þú færð tannpínu. Ef það fer ekki með þá þjónustu er það þá eitthvað að fara ef það verður svipt henni?