Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 54. fundur,  24. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[17:08]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar og bara fyllist krafti fyrir hans hvatningu og mun auðvitað leggja mig fram. Af því að hann hefur litla trú á vinnunni fram undan þá vil ég árétta hér að það hefur verið ágætissátt innan meiri hlutans. Við erum ólíkir flokkar með mjög ólíka sýn á málaflokkinn en við höfum unnið vel saman og hver sem sjá það vill getur séð að frumvarpið hefur tekið miklum breytingum frá því að það var fyrst lagt fram þannig að ég ætla ekki að missa vonina.