útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jódísi Skúladóttur fyrir ræðuna. Það kemur mér á óvart, eins og mörgum öðrum hér, að Vinstri græn skuli styðja þetta frumvarp sem er gegnsýrt af andúð gegn fólki á flótta, fordómum (Gripið fram í.)og misskilningi á ástæðum þess að fólk leitar hingað til lands — bara hreinn sannleikur. Í frumvarpinu er ákvæði sem hefur verið gagnrýnt af hálfu Barnaheilla og UNICEF sem gerir það að verkum að börn munu missa réttindi vegna athafna annarra. Eins og lögin eru í dag þá á barn, eins og aðrir, rétt á því að fá áheyrn umsóknar sinnar eftir tiltekinn tíma ef stjórnvöld hafa dregið lappirnar eða ef málið hefur tafist af öðrum ástæðum varðandi hvort það eigi að opna málið eða ekki. Samkvæmt frumvarpinu verður það þannig að ef einhver í nærumhverfi barnsins, svo sem foreldri þess, annar fjölskyldumeðlimur eða jafnvel lögmaður barnsins, verður talinn hafa átt þátt í því að málið dróst á langinn á einhverjum tímapunkti í málsmeðferðinni — það gæti hafa gerst í fyrstu vikunni, við vitum ekki hvenær, segjum að foreldrar mæti ekki í læknistíma eftir þrjár vikur — þá á barn engan rétt á áheyrn þegar það er búið að vera hérna í ár. Þarna missir barn réttinn til þess að fá áheyrn vegna athafna annarra. Það var mjög skýrt í umsögnum aðila að þetta er brot á barnasáttmálanum, brot á íslenskum lögum um réttindi barna.
Mig langar að spyrja hv. þingmann fjögurra spurninga hvað þetta varðar. Í fyrsta lagi: Finnst þér þetta í lagi? Er þetta ákvæði sem þú ert reiðubúin að samþykkja með grænu atkvæði hér í þingsal? Í öðru lagi: Mun þetta standa í frumvarpinu? Í þriðja lagi: Yfirsást þér þetta við meðferð málsins í nefndinni? (Forseti hringir.) Í fjórða lagi: Hvers vegna er ekki minnst á þetta í nefndaráliti meiri hlutans sem hv. þingmaður ritaði undir?