Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 54. fundur,  24. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[17:17]
Horfa

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og ítreka að það er gott að taka umræðuna hér í þingsal um það hver framtíðarsýn okkar er í þessum málum og hvernig við tökum á móti fólki sem hingað kemur. Ég tel einnig að nefndin eigi eftir að ræða ýmislegt og þykir því gott að hv. þingmaður hafi kallað eftir því að þetta komi aftur inn til nefndarinnar.