útlendingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hv. þingmaður sagðist í ræðunni ætla að gera frumvarp það sem við fjöllum hér um betra, en hv. þingmaður er á nefndaráliti meiri hluta og studdi að það yrði tekið út úr nefnd. Þá gerði þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs engan fyrirvara við frumvarpið, né var nokkur fyrirvari á stuðningi hv. þingmanns við nefndarálitið. Maður veltir fyrir sér hvað hefur breyst. Það sem kemur fram í skýrslu Rauða krossins er ekkert nýtt. Þetta kom auðvitað fram í umfjöllun í nefndinni, varðandi fólk sem er í þessari stöðu að hafa verið synjað og komast hvergi. Það var líka fjallað um það á ferðum okkar erlendis og því átta ég mig ekki alveg á hvað hefur gerst síðan umfjöllun lauk öðru sinni í síðustu viku og þangað til við erum allt í einu stödd hér í dag. Það var ekkert rætt um að kalla málið inn í nefnd eða að það þyrfti frekari vinnu, þvert á móti var málið tekið út.
Þá vil ég spyrja hv. þingmann: Hvers vegna hefur hæstv. félagsmálaráðherra og varaformaður Vinstri grænna ekki látið málið til sín taka? (Forseti hringir.) Hefur hv. þingmaður eitthvað reynt að hlutast til um það að ráðherra hluta málaflokksins sem er hér undir tjái sig eða komi hér inn í þingsal, eins og við höfum kallað eftir?