153. löggjafarþing — 54. fundur,  24. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[17:53]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður fór mikinn í ræðu sinni og talaði um það að allir ættu að eiga réttindi á Íslandi samkvæmt stjórnarskránni. Mér finnst það ekki alveg hafa komið fram í þessari umræðu hver grundvallarsýn hv. þingmanns til málefna sem snúa að útlendingum er í grunninn. Telur hv. þingmaður að hér eigi ekki að vera nein landamæri og þess vegna gildi bara íslenska stjórnarskráin alltaf fyrir alla sem hingað koma? Það er alveg skoðun að vilja ekki hafa hér landamæri. En mér finnst erfitt að greina það út frá ræðu hv. þingmanns hvort hann telji svo vera eða hvar hann telji þá að mörkin eigi að vera í þessum efnum.

Mín skoðun er sú að við eigum að taka við sem allra flestum hingað, gera eins vel og við getum og gera okkur gildandi þegar kemur að því að taka á móti fólki sem er að flýja hörmulegar aðstæður. Ég held hins vegar að við munum ekki geta tekið við öllum. Það er svolítið sárt að segja það en ég held að það sé bara hin blákalda staðreynd að ekki stærri þjóð en okkar geti það ekki. Hins vegar eigum við að taka vel á móti sem flestum og finnst mér mikilvægt að draga fram hjá hv. þingmanni hvernig hann sjái fyrir sér þessi mörk og hvernig þessu eigi að vera háttað.