útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Loga Einarssyni fyrir ræðu sína sem var um margt áhugaverð. Hann talaði m.a. um mikilvægi þess að lögin væru skýr og réttindi hælisleitenda virt, málsmeðferð væri mannúðleg og mikilvægt væri að draga ekki úr réttindum hælisleitenda. Allt orð sem ég tek algjörlega undir. Hann minntist einnig á að það þyrfti fleiri vinnandi hendur og það má líka sjá í nefndaráliti 1. minni hluta, sem Samfylkingin stendur á bak við, að íslenskur vinnumarkaður þarfnist aukins fjölda í hin ýmsu störf á næstu árum og áratugum. Hann ræddi einnig um heimóttarlega sýn stjórnvalda sem má að hluta til taka undir.
Það er eitt sem ég get ekki annað en nefnt — ég þakka líka fyrir lokaorðin en tilvitnunin í Laxness var mjög skemmtileg — það er flóttinn frá Íslandi. Flóttinn frá Íslandi fyrir rúmum 100 árum, í kringum 1900, var efnahagslegur flótti. Fólk var að flýja örbirgð. Það hafði ekki ástæðuríkan ótta fyrir því að vera ofsótt á Íslandi vegna stjórnmálaskoðana sinna, þjóðernis, kynþáttar eða aðildar að þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana. Það er umræðuefnið hér í dag. Við erum að fjalla um alþjóðlega vernd, umsóknir hælisleitenda um alþjóðlega vernd og ekkert annað.
Mig langar að spyrja hv. þingmann — ég er ekki enn þá búinn að átta mig alveg á því — hver stefna Samfylkingarinnar sé í þessu máli, svo það liggi bara fyrir. Ég átta mig ekki á því hvort þeir séu eins og sænskir sósíaldemókratar eða danskir sósíaldemókratar. Eru þeir „No borders?“ Vilja þeir bara ekki hafa nein landamæri? Vilja þeir ekki að umsóknarferlið standist alþjóðaskuldbindingar? Hver er stefna flokksins í þessum málum?