útlendingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Ég hef rakið það hér að við og sveitarfélögin, sem við þurfum að hafa samstarf við við móttöku þeirra sem eru að leita eftir vernd, erum nú þegar komin að þolmörkum. Það er óumdeilt. Sveitarfélögin hafa ályktað í þessa veru. Félagslega kerfið í þessum sveitarfélögum og skólakerfið eru komin að þolmörkum og ég hef áður sagt það hér að sem dæmi hefur Reykjanesbær ákveðið að hann taki ekki á móti fleiri flóttamönnum. Af því að hv. þingmaður spyr hvað ég vilji taka á móti mörgum, þá er alveg ljóst að við getum ekki tekið á móti fleirum þegar við erum komin að þolmörkum. Það er bara þannig. Við höfum ekki húsnæði og sveitarfélögin, sem við erum algerlega háð í þessu samstarfi, eru einfaldlega búin að segja okkur að þau ráði ekki við þetta lengur. Þar verðum við náttúrlega að setja mörkin og þá getum við ekki tekið á móti fleirum. Þess vegna væri hægt að álykta sem svo að nú verðum við að fara yfir stöðuna og hvert við erum komin í þessum málaflokki. Ef við erum komin á þá endastöð að hér sé ekki hægt að veita þessu fólki þjónustu, jafnvel þótt það eigi rétt á vernd, þá er alveg ljóst að við getum ekki tekið á móti því. Það segir sig bara sjálft.
Svo spyr hv. þingmaður um heilbrigðisþjónustuna. Að sjálfsögðu verður að veita þeim heilbrigðisþjónustu sem þurfa á henni að halda, hvort sem það eru Íslendingar, útlendingar eða ferðamenn sem koma til landsins. Við reynum að leitast við að veita öllum heilbrigðisþjónustu. Þá erum við komin að vandamáli heilbrigðiskerfisins sem felst m.a. í undirmönnun. (Forseti hringir.) Allt eru þetta atriði sem þarf að hafa í huga þegar við erum að taka á móti þeim sem eru að sækjast eftir alþjóðlegri vernd.