153. löggjafarþing — 54. fundur,  24. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[19:31]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður vill ekki svara því hversu mörgum hann vilji taka á móti, þó svo hann spyrji okkur í stjórnarandstöðunni ítrekað þessarar spurningar. Hv. þingmaður vill heldur ekki ýta á flokkssystkini sín í Kópavogi, Garðabæ, Seltjarnarnesi og fleiri stöðum til að taka sinn hluta. En það er allt í lagi.

Hv. þingmaður ræddi líka um að hér væri mikill fjöldi að koma. Hvaðan er þessi fjölda koma? Jú, stærsti hlutinn er að koma frá Úkraínu og við sem þjóð, öll sem eitt, sögðum hér inni þegar stríðið byrjaði: Við tökum á móti ykkur. Við eigum að vera stolt af því og ekki nýta okkur það til að reyna að sýna að það sé einhver brotalöm í kerfinu hjá okkur.

Hv. þingmanni, eins og fyrrum samstarfsfélögum hans, er tíðrætt um einhverjar aðdráttaraflssérreglur sem Ísland er með en aldrei eru þessar sérreglur nefndar á nafn. (BirgÞ: Ég var að segja það …)Nei, því er bara slegið út: Sérreglur, sérreglur, sérreglur. Það er aldrei sagt nákvæmlega hverjar þær eru. (BirgÞ: Þú hlustaðir ekki á ræðuna.)Jú, ég hlustaði á hv. þingmann. Ég spyr líka hv. þingmann: Hverja vill hann fá hingað? Honum virðist vera umhugað um að stýra því hverjir koma hingað. Hingað hafa 60.000 manns komið frá því að við gengum í EES. Einn dag fyrir 50 árum og einum degi síðan tókum við á móti 5.000 manns á einni nóttu. Hvað getum við tekið við mörgum? Hér hefur verið bent á að það vanti þúsundir manna í störf á næstu árum. Má það fólk ekki koma utan Evrópu? Hvað er hv. þingmaður til í að taka á móti mörgum og hvaðan mega þeir koma?