útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir að taka virkan þátt í þessari umræðu. Mig langar til að spyrja hv. þingmann út í ákvæði frumvarpsins er lýtur að sviptingu þjónustu að 30 dögum liðnum. Mig langar til að biðja hv. þingmann um að leggja gagnrýni er lýtur að mannréttindum aðeins til hliðar. Í framkvæmd í dag þá fer slatti af fólki í kjölfar lokasynjunar, ýmist sjálfviljugur eða í fylgd stoðdeildar ríkislögreglustjóra. Þó eru ákveðnir einstaklingar sem fara ekki þrátt fyrir að vera hérna án réttinda, í rauninni í því sem sumir vilja kalla ólöglegri dvöl sem er kannski ákveðið rangnefni. Þrátt fyrir mjög slæmar aðstæður hér, þrátt fyrir að sú „þjónusta“ sem þau fá séu heilar 8.000 kr. á viku til að sjá fyrir öllum nauðsynjum, þakið yfir höfuðið sé gjarnan herbergi sem deilt er með öðrum, algjöra lágmarksheilbrigðisþjónustu, ekkert atvinnuleyfi, engin réttindi, enga kennitölu — kennitala er oft fyrsta orðið sem fólk í þessari stöðu lærir á íslensku — þrátt fyrir að eiga jafnvel kost á aðstoð við heimför, líkt og hv. þingmaður talaði um hér, allt að 450.000 kr. til að koma undir sig fótunum í heimaríki, jafnvel loforð um að það verði engir stimplar settir í vegabréf og annað slíkt — þrátt fyrir allt þetta eru einstaklingar sem neita að fara. Ég ætla bara að leyfa mér að taka undir orðalag hv. þingmanns og tala um fólk sem neitar að fara. Telur hv. þingmaður að einstaklingar sem ekki fara þrátt fyrir allt þetta, muni fara þótt þessi „þjónusta“ verði takmörkuð enn frekar? Það er fyrri spurning mín til hv. þingmanns. Er eitthvað sem bendir til þess að þetta ákvæði muni þjóna meintum tilgangi sínum? (Forseti hringir.)
Svo langar mig til að spyrja hv. þingmann: Hefur hann engar áhyggjur af áhrifum þess á samfélagið að hér verði hópur fólks, (Forseti hringir.) líklega örvæntingarfullra og úrræðalausra karlmanna sem eru einir á ferð, sem eiga hvergi húsaskjól og eru á götunni? Leggjum mannréttindi til hliðar; hefur þingmaðurinn engar áhyggjur af þessu fyrir íslenskt samfélag?