útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og fyrir að fá tækifæri til að koma inn á þessi svör. Fyrst varðandi tilhæfulausar umsóknir þá er það skilgreining á vissri tegund umsókna og það getur vel verið að þær séu bara níu. En það eru miklu fleiri sem er hafnað og eiga ekki heima í kerfinu. Það sem ég er að benda á er að það eru hlutfallslega margfalt fleiri umsóknir hér en í öðrum Evrópuríkjum, og sérstaklega á Norðurlöndunum, og það hlýtur að segja sína sögu um það að allar þessar umsóknir eiga ekki heima inni í hinu almenna evrópska verndarkerfi sem ég ætlaði að koma inn á næst. Ég sagði í ræðu minni að það væri ekki samræmd löggjöf um þetta. En ég er að segja að við erum með linari löggjöf en öll Evrópuríkin og öll Norðurlöndin. Þó að hvergi sé hægt að bera þetta saman þá er hún almennt séð linari hér og það sýnir sig í því að við erum með hlutfallslega fleiri umsóknir. Þessi tala, talan níu, á því ekkert heima í þessu samhengi.
Varðandi skipulagða brotastarfsemi þá er hægt að taka á henni með því að hafa löggjöfina skýrari og skilvirkari þannig að það myndist ekki svona „trend“ eða venja — virðulegur forseti, ég veit ekki hvort orðið „trend“ er íslenska eða ekki — hvað það varðar að koma hingað til lands. Með því að hafa skýra löggjöf og skýra framkvæmd stoppum við þann feril. Þannig gerum við skipulagða glæpastarfsemi erfiðari. Þegar lögreglan hefur haft bolmagn og getu til að fara inn í slík mál hafa þessi „trend“ stoppað en þegar umsóknir eru komnar upp í meira en 4.000 er miklu erfiðara fyrir lögregluna að gera það. Við vorum því að bæta við fjármagni til lögreglunnar í fjárlögunum síðast sem mun vonandi hjálpa okkur í þessu.