153. löggjafarþing — 54. fundur,  24. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[20:39]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Forseti. Mig langar að benda hv. þingmanni á að ástandið í Venesúela hefur verið skilgreint af Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna sem ástand sem hefur ekkert með efnahag að gera heldur það að ráðist er á fólk sem er andvígt ríkisstjórninni. 7,1 milljón hefur flúið Venesúela, 6 milljónir hafa sest að í löndum Suður-Ameríku. Restin er í Evrópu. Bara svona smátölfræði fyrir hv. þingmann.

Hv. þingmaður talaði um lítil sveitarfélög og hvað þau væru búin að taka á sig. Það er alveg rétt að á Suðurnesjum, þar sem við hv. þingmenn búum, hefur verið tekið á móti miklum fjölda og er það af hinu góða. En mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann telji ekki að sveitarfélög sem eru undir stjórn hans flokks, eins og Kópavogur, Garðabær og Seltjarnarnes, eigi að taka á móti fleirum hlutfallslega miðað við stærð og getu en lítil sveitarfélög á Suðurnesjum.