153. löggjafarþing — 54. fundur,  24. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[22:13]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Fyrst varðandi hlutföllin þá er það auðvitað þannig að ef minnið svíkur mig ekki þá hefur hartnær þriðjungur þeirra sem flúið hefur Úkraínu flúið til Rússlands. Það eru ekki nema tveir þriðju sem hafa flúið til annarra landa. Ég held að ég muni þetta hlutfall og það skeikar í öllu falli ekki miklu. Þetta eru tölur frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og ég skal bara finna þær til hér á eftir, ég held ég eigi þetta útprentað á skrifstofunni minni. Það er snúið að vinna með tölurnar sem snúa að þeim sem flýja Úkraínu þessa mánuðina og sé staðan sú, sem ég tel að sé raunin, að flestir ef ekki allir vilji snúa aftur til síns heima að stríðinu loknu, þá er auðvitað eðlilegt að fleiri komi sér fyrir nær heimalandi sínu, eins og t.d. í Póllandi, frekar en að ferðast langa vegu, eins og til að mynda þeir sem koma hingað til Íslands.

En varðandi spurningu hv. þingmanns: Hvað eigum við að taka á móti mörgum? Þarna er spurt lykilspurningar sem við enn sem komið er eigum erfitt með að svara nema með því að setja puttann upp í loftið. Við getum auðvitað notað hlutfall varðandi umsóknir og komur fyrri ára en höfum ekki framkvæmt neina greiningu á því hvað kerfin okkar ráða við. Það hefur verið í flugumynd hjá stöku sveitarfélagi þegar samningar hafa verið gerðir, en það er nauðsynlegt í mínum huga að framkvæma greiningu á því á landsvísu hvað hin ýmsu velferðarkerfi okkar, skólakerfið, menntakerfið og heilbrigðiskerfið, ráða við; hver staðan er í húsnæðismálum og þar fram eftir götunum. (Forseti hringir.) Án þeirra upplýsinga er mjög erfitt að nefna tölu en ég vil flagga því strax að ég mun koma aftur inn á þetta í seinna andsvari.