útlendingar.
Virðulegi forseti. Það er auðvelt að segja um okkur, hv. þingmenn úr stjórnarandstöðunni sem hér stöndum, að við séum að röfla eitthvað um hluti sem við vitum ekkert um. Þá er kannski vert að hlusta á það sem þeir sem eru sérfræðingar í þessum málum sögðu í umsögnum sínum en ráðuneyti og meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar ákvað að hlusta ekki á. Byrjum á Kvenréttindafélagi Íslands. Kvenréttindafélag Íslands krefst þess að dómsmálaráðuneytið og stjórnvöld dragi þetta frumvarp til baka og vinni það upp á nýtt. Þau benda m.a. á að þetta frumvarp stangist á við sjónarmið stjórnarsáttmálans. Þá sé sérstaklega ámælisvert að hvergi sé minnst á konur í viðkvæmri stöðu, eins og við heyrðum hér á undan, og að frumvarpið hunsi því með öllu þá hættu sem steðji að konum sem lenda t.d. í mansali. Kvenréttindafélagið bendir á að frumvarpið brjóti gegn 1. gr. jafnréttislaga og að ekki sé tekið tillit til sérstakrar stöðu kvenna eða annarra hópa. Þegar ég les þessa umsögn, og það að ekkert var gert í henni, þá spyr ég mig hvort kannski sé ríkisstjórninni og stjórnarþingmönnum alveg sama um jafnrétti, sérstaka stöðu kvenna eða þolendur mansals.
Förum í næstu umsögn. Íslandsdeild Amnesty international, þau skora á ríkisstjórnina að draga þetta frumvarp til baka en í umsögn sinni segja þau m.a. að þau telji að þetta frumvarp muni leiða til mun lakari stöðu umsækjenda um alþjóðlega vernd en nú þegar er við lýði gagnvart stjórnvöldum og að ástæða sé til að hafa verulegar áhyggjur af þróun virðingar fyrir mannréttindum umsækjenda um alþjóðlega vernd.
Virðulegi forseti. Kannski telur ríkisstjórnin að mannréttindi séu eitthvað sem eigi bara við suma en ekki alla. Ég sagði í fyrri ræðu minni að George Orwell rithöfundur hefði orðað það svo vel, með leyfi forseta: Öll dýr eru jöfn en sum dýr eru jafnari en önnur.
Förum í næstu umsögn, frá embætti landlæknis. Embætti landlæknis skorar á ríkisstjórnina að virða mannréttindi fólks til heilbrigðisþjónustu. Í sinni umsögn segja þau m.a. að það að njóta heilbrigðisþjónustu séu grundvallarmannréttindi, fyrir utan að það sé ómannúðlegt að neita einstaklingi um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Þetta geti boðið heim hættu fyrir aðra, t.d. ef einstaklingar eru haldnir smitsjúkdómi eða geðröskun sem hugsanlega er ekki metin alvarleg við fyrstu sýn.
Frú forseti. Grundvallarmannréttindi, er það eitthvað sem ríkisstjórn með Sjálfstæðismönnum innan borðs þarf að virða? Ég spyr mig. Rauði krossinn á Íslandi leggst alfarið gegn ómannúðlegum tillögum frumvarpsins og bendir á að þau telji að þar sem frumvarpið veiti lögreglu heimild til að afla heilbrigðisvottorða um andlegt og líkamlegt heilbrigði útlendings án samþykkis hans standist það ekki þau markmið sem stjórnarskrá og mannréttindasáttmáli Evrópu telja lögmæt. Rauði krossinn bendir á að ekki megi draga úr mikilvægi þess að fólk njóti grunnheilbrigðisþjónustu á meðan það dvelur hér á landi.
Frú forseti. Ég spyr mig: Er þessi stjórnarskrá og þessi mannréttindasáttmáli ekki eitthvað sem ríkisstjórnin á að virða eða er hún vön að hunsa það fram í rauðan dauðann?
Höldum áfram með þessar umsagnir. Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofa Reykjavíkur, þau telja að meta eigi hverja umsókn fyrir sig og meta forsendur óháð upprunaríki umsækjenda. Þau benda á að í 6. gr. frumvarpsins sé fjallað um réttindi umsækjenda frá EES, EFTA-ríkjum eða af lista Útlendingastofnunar yfir örugg ríki og að þau falli niður þegar Útlendingastofnun hefur synjað umsókn um alþjóðlega vernd. Þau benda á að þrátt fyrir að ríki geti talist öruggt fyrir einn hóp fólks er ekki þar með sagt að það sé öruggt fyrir alla hópa eða alla einstaklinga. Þar með sé ljóst að þegar Útlendingastofnun sé að útbúa lista yfir örugg ríki þá sé t.d. ekki verið að taka mið af stöðu hinsegin fólks í landinu. Til að mynda má nefna að í löndum sem teljast örugg, svo sem í Georgíu og Ungverjalandi, nýtur hinsegin fólk nær engrar lagalegrar verndar. Við sáum það kannski bara best á gríninu í áramótaskaupinu að það er kannski þannig að Útlendingastofnun og ríkisstjórnin eru á því að allir þeir sem segjast vera hinsegin þegar þeir sækja um hæli séu í raun bara að ljúga til að fá hæli hér á landi. Maður spyr sig.
Svo er það Mannréttindaskrifstofa Íslands. Mannréttindaskrifstofa Íslands telur það réttarskerðingu að endurtekinni umsókn sé vísað frá ef umsækjandi er ekki á landinu. Þau segja m.a. að það verði að teljast óásættanlegt að svipta fólk þjónustu, skilja það eftir heimilislaust, án framfærslu og viðunandi heilbrigðisþjónustu. Þetta bjóði bara upp á mansal, ofbeldi og að einhver hagnýti sér aðstæður viðkomandi. Að mati Mannréttindaskrifstofu Íslands hefði við gerð frumvarpsins átt að gæta að kynjasjónarmiðum hvað varðar frumvarpið í heild og meta hvaða áhrif fyrirhugaðar lagabreytingar geti haft á stöðu einstaklinga eftir kyni, kynhneigð, kyngervi, kynvitund og kyneinkennum. Jahá, það er ekkert minna sem þeir segja. Það er þannig, frú forseti, að á meðan dómsmálaráðherra segist vera að reyna að koma í veg fyrir mansal þá telur Mannréttindaskrifstofa Íslands, sem hefur aðeins meiri skilning á þessum vettvangi en ráðherra, að frumvarpið muni leiða til þess að mansal geti aukist.
Þetta voru bara nokkur dæmi upp úr þeim umsögnum sem bárust sem ekkert var hlustað á, ekkert. Eins og bent var á í ræðu hér á undan er það samráð sem ríkisstjórnin og stjórnarmeirihlutinn hér á þingi hafa viðhaft algjört sýndarsamráð. Það er ekki hlustað á neitt sem er sagt, ekkert. Og þetta erum ekki bara við að röfla, (Forseti hringir.) þetta eru sérfræðingarnir.