útlendingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson varði töluverðum hluta ræðu sinnar í að fara í gegnum umsagnir þar sem var dregið fram að ekki væri gætt að réttindum flóttakvenna með fullnægjandi hætti og tíndi til stuðnings máli sínu umsagnir ýmissa aðila sem veittu umsögn um frumvarpið eins og það liggur fyrir.
Mig langaði í þessu samhengi að spyrja hv. þingmann hvort í undanþáguhluta regluverksins sem nú liggur fyrir sé kannski að nokkru marki tekið alldrjúgt tillit til þeirra sjónarmiða er hann tæpti á áðan varðandi stöðu kvenna á flótta þegar horft er til ákvæðanna þar sem segir, með leyfi forseta:
„Undanþegin þjónustuskerðingunni skulu vera börn, foreldrar eða umsjónarmenn þeirra og ættingjar, barnshafandi konur …“
Mér sýnist svona, ef tölfræðin er skoðuð, að konur falli að mjög miklu leyti undir einhverja þessara skilgreininga eins og tölfræðin liggur fyrir. Eru það aðrir þættir en þeir sem snúa að þessum hluta regluverksins sem þingmaðurinn er að vísa til þegar hann lýsir áhyggjum af því, og tekur undir þær umsagnir sem hafa dregið fram þá skoðun, að hlutur kvenna á flótta væri fyrir sérstaklega fyrir borð borinn?