153. löggjafarþing — 55. fundur,  25. jan. 2023.

viðvera félags- og vinnumarkaðsráðherra í þingsal.

[15:01]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Mig langar að rifja hér upp umræðu sem átti sér stað 9. desember sl. þegar við gerðum kröfu um að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra yrði viðstaddur umræðu um útlendingafrumvarpið sem er hér á dagskrá síðar í dag, ekki bara vegna þess að hluti frumvarpsins heyrir undir málasvið ráðherrans og því eðlilegt að hann geri grein fyrir afstöðu sinni til þess, heldur vegna þess að ráðuneytið kallar beinlínis eftir því að hafa afskipti af málinu. Fulltrúar ráðuneytisins báðu í desember um að koma á fund allsherjar- og menntamálanefndar og gera grein fyrir afstöðu sinni til ákveðinna þátta málsins. Sú afstaða þarf að koma fram hér í þingsal af munni ráðherra. Það er ekki hægt að klára umræðu um útlendingafrumvarpið án þess að félags- og vinnumarkaðsráðherra mæti hingað í þingsal og segi þinginu hvers vegna ráðuneytið vildi taka hluta málsins til sín. Þetta er krafa, forseti, sem verður að verða við. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)