störf þingsins.
Herra forseti. Við veltum því stundum fyrir okkur hér á þinginu, en kannski ekki nógu mikið, hversu takmörkuð áhrif þingsins eru í rauninni orðin á gang mála í samfélaginu og lagasetningu. Ég er ekki bara að tala um ráðherraræðið, ég er líka að tala um allar nefndirnar, ohf.-félögin og auðvitað alla aðsendu pakkana að utan. En þetta hefur mjög raunverulegar afleiðingar og koma upp dæmi aftur og aftur um eitthvað sem þingið hefur ekki haft aðkomu að en hefur þó veruleg áhrif á samfélagið.
Viðskiptablaðið og Morgunblaðið hafa nýverið fjallað um aflátsbréfin svokölluðu sem íslenskir orkuframleiðendur selja til útlanda í miklum mæli svoleiðis að erlend fyrirtæki, sem nota í raun kolaorku til að mynda eða kjarnorku, geti, ég ætla bara að segja það, herra forseti, logið til um það að þau séu að nota hreina endurnýjanlega orku. En nú bætist það við að ætlast er til þess af íslenskum fyrirtækjum að vilji þau halda sannleikanum fram, þeim sannleika að þau noti u.þ.b. 100% hreina endurnýjanlega orku, þá þurfi þau að borga sérstaklega fyrir að fá að segja sannleikann. Þetta er mál sem þingið hlýtur að láta sig einhverju varða þegar verið er að koma á, og langt komið með það, kerfi þar sem þarf að greiða fyrir að segja sannleikann og á hinum endanum að greiða fyrir að fá að segja ósatt, því að ástæðan fyrir því að erlendu fyrirtækin borga aukalega fyrir að fá að segja ósatt um uppruna orkunnar er sú að þau telja sér það í hag, þau græði á því. Hin hliðin á þeim peningi er að íslensku fyrirtækin tapa þá væntanlega á því að fá ekki að segja satt um uppruna sinnar orku. Þetta getur Alþingi Íslendinga ekki látið óátalið.