störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í gær birti umboðsmaður Alþingis bréf sitt til dómsmálaráðherra þar sem hann spyr út í aðdraganda þeirrar ákvörðunar að heimila lögreglumönnum að bera rafbyssur. Tilefnið er að sjálfsögðu ærið þar sem allt sem fram hefur komið um málið bendir til þess að um fullkomna handvömm hafi verið að ræða, að ákvörðun hafði verið tekin einhliða af ráðherranum án þess að ráðfæra sig við kóng eða prest. En það er líka pínu gaman fyrir mig persónulega að sjá að spurningarnar frá umboðsmanni Alþingis skarast að miklu leyti við spurningar sem ég lagði sjálfur fram í minni fyrstu skriflegu fyrirspurn sem var útbýtt hér á þinginu í gær. Þetta er alveg helber tilviljun, ekkert samráð í gangi, en samt ekki alveg tilviljun af því að spurningarnar skrifa sig, myndi ég segja, í raun að mörgu leyti sjálfar þegar hugsað er út í þetta mál. Sennilega stærsta spurningin hérna varðar ákvæði í lögum um Stjórnarráð Íslands þar sem fjallað er um skyldu til að halda ríkisstjórnarfundi um mikilvæg stjórnarmálefni. Spurningin er þá hvort svona ákvörðun um aukna vopnvæðingu lögreglunnar teljist til mikilvægra stjórnarmálefna eða ekki. Málið er nefnilega að þetta snýst ekki bara um ákvörðunina sjálfa heldur líka um undirbúning hennar og aðdraganda. Það er nógu umdeilt í sjálfu sér að ákveða að lögreglan beri rafbyssur og svo er annað mál hvernig það er ákveðið og hvernig það er útfært. Í öðrum ríkjum þar sem þetta hefur verið innleitt er allt ferlið við það tekið alvarlega í samræmi við þá ábyrgð sem svona ákvörðun fylgir. Þannig að það er gott að sjá að umboðsmaður Alþingis tekur þessa ábyrgð alvarlega fyrst ráðherrann gerir það ekki.