störf þingsins.
Herra forseti. Ég ætlaði mér hér í dag að fjalla um þá staðreynd að við virðumst lifa á tíma myglunnar og svar stjórnvalda við því er fyrst og fremst það að draga úr rannsóknum á þeim vágesti. En ég get ekki annað en fylgt eftir því sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kom inn á hér áðan og varðar sölu aflátsbréfa sem er eitt af þessum kerfum sem hafa verið formuð þar sem aðgerðirnar vinna beinlínis gegn yfirlýstum markmiðum. Tannlæknirinn í Belgíu sem kaupir aflátsbréf til að kolefnisjafna jeppann sinn sem hann vill aka um á — það að hann geti keypt aflátsbréf frá Íslandi dregur úr þrýstingi hans á belgísk stjórnvöld að auka græna orkuframleiðslu. Þessi nálgun gengur gegn markmiðum sínum. Það er auðvitað alveg ótrúlegt og óþolandi í raun að þetta skuli gerast eins og t.d. í tilfelli Landsvirkjunar þar sem hæstv. fjármálaráðherra heldur á hlutabréfinu og eigendastefnan er eins mikil moðsuða og hægt er að hugsa sér. Í henni stendur ekkert annað en það sem stendur um öll hin ohf.-in. Að svona ákvarðanir séu teknar án þess að um þær eigi sér stað einhver vitræn pólitísk umræða á Alþingi leyfi ég mér að gagnrýna verulega því kerfið eins og það er sett upp núna vinnur gegn markmiðum sínum. Halda menn að það að Landsvirkjun fái tekjur af sölu aflátsbréfa til útlanda auki græna orkuframleiðslu á Íslandi? Auðvitað gerir það það ekki. Það er allt annað sem er að stoppa græna orkuframleiðslu á Íslandi heldur en skortur á tekjum af sölu aflátsbréfa. Ég hvet okkur hér í þinginu, hæstv. forseti, til að eiga þetta samtal hér á dýptina því að þetta gerist einhvern veginn á sjálfvirku færibandi og það er ekki boðlegt með jafn mikilvægt atriði og hér er undir.