störf þingsins.
Virðulegi forseti. Maður lærir margt gagnlegt þegar maður tekur þátt í 12 spora starfi, m.a. það að þegar fíflunum og fávitunum fjölgar í kringum mann þá er kominn tími til að líta í eigin barm og gera eitthvað í sínum málum. Mér hefur verið hugsað til þess undanfarna daga yfir umræðunni hér um breytingar á útlendingalögum, ekki af því að þið séuð svo mikil fífl og fávitar, þvert á móti, umræðan hefur að mörgu leyti verið góð og gagnleg, en ég er hugsi yfir hártogunum um það hvort við eigum að færa okkur nær lagaumhverfi og framkvæmd á Norðurlöndunum og annars staðar í Evrópu. Íslensk lög og lagaumhverfi varðandi útlendinga eru sannarlega ekki samin í tómarúmi. Það virðist alltaf koma einhverjum á óvart en eins og svo mörg önnur íslensk lög eru þau byggð á norrænni löggjöf og eru undir evrópskum áhrifum, m.a. vegna aðildar okkar að EES-samningnum og að Schengen-samstarfinu. Síðustu heildarlög um útlendinga frá 2002 voru þannig samin með hliðsjón af norrænni löggjöf og núgildandi lög frá 2017 byggðu að miklu leyti á norskri útlendingalöggjöf. Hins vegar er ljóst að ýmislegt í okkar útlendingalöggjöf og framkvæmd á sér ekki hliðstæðu í nágrannalöndum okkar og það þarf ekkert að deila um það, sú niðurstaða fæst með einföldum samanburði. Fólk getur verið ósammála um það hvort það sé gott eða slæmt. En ef reynsla nágrannaþjóða okkar leiðir til þess að þau ákveða að haga sinni löggjöf með ákveðnum hætti þannig að samhljómur er með þeim og við skerum okkur úr, ættum við kannski að leggja við hlustir eins og vanalega? Eða eru þetta allt eintóm fífl og fávitar þarna í Evrópu?