störf þingsins.
Virðulegi forseti. Nú á mánudaginn tók ég sæti á Alþingi í annað skiptið. Í það fyrra snerist öll umræðan um mistök ofan á mistök við talningu atkvæða. Þá náði ég að vera þingmaður í nokkrar mínútur áður en fundi var frestað, eftir að ég meðal annarra kaus gegn mínu eigin kjörbréfi. Þrátt fyrir ítrekaðar tillögur og tækifæri um úrbætur ákvað Alþingi engu að síður á endanum að staðfesta niðurstöðuna. Ljóst var á álitum og greinargerðum að víða hafði pottur verið brotinn við framkvæmd kosninganna. Það er ljóst að aðkoma umboðsmanna lista var ekki fullnægjandi. Það er ljóst að auglýsing talningar var ekki fullnægjandi. Það er ljóst að vegna kæru snemma í ferlinu hafði yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis réttarstöðu sakbornings. 124. gr. laga nr. 24/2000, sem giltu um kosningarnar, er svohljóðandi, með leyfi forseta:
„Það varðar sektum, ef ekki liggur þyngri refsing við eftir öðrum ákvæðum þessara laga eða eftir öðrum lögum, ef sveitarstjórn, kjörstjórn, utankjörfundarkjörstjóri eða embættismaður hagar fyrirskipaðri framkvæmd laga þessara vísvitandi á ólöglegan hátt eða vanrækir hana.“
— Eða vanrækir hana. Hvernig er þá hægt að skýra það að þrátt fyrir ítrekaðar kærur til ákæruvalds hafi enginn þurft að taka ábyrgð í málinu? Fjöldi kjósenda hefur gefið það út að þeir muni aldrei kjósa aftur því að traustið er brostið. Eru þingmenn sáttir við að niðurstaðan í málinu sé að þeir embættismenn sem tóku að sér að tryggja framkvæmd kosninga og vanræktu með svo grófum hætti skyldur sínar þurfi ekki að taka ábyrgð á framkvæmdinni? Ég hvet hæstv. ráðherra Jón Gunnarsson til að leita skýringa á því hvernig svo geti verið.