153. löggjafarþing — 55. fundur,  25. jan. 2023.

störf þingsins.

[15:23]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegur forseti. Mikil verðbólga og örar vaxtahækkanir Seðlabankans hafa þyngt róður heimilanna mjög. Það er stutt síðan að meiri hluti nýrra lána var óverðtryggður en staðan í dag er að 86% nýrra lána hjá bönkunum eru verðtryggð. Ríkisstjórnin talar um að þessi sveigjanleiki sé góður fyrir heimilin en fyrir fólk sem upplifir það nánast sem áhættufjárfestingu að ætla sér að eignast heimili er erfitt að taka undir.

Kosningaloforð Sjálfstæðisflokksins um íslenskt lágvaxtaskeið stóð í heila fimm mánuði. Þá var komið að næstu bylgju hins svokallaða sveigjanleika. Verðbólgan er auðvitað veruleikinn víða um lönd núna og það er staðreynd að verðbólgan er víða hærri en hér á Íslandi, en vextirnir á Íslandi eru margfalt hærri en annars staðar. Ástæðan fyrir því er einföld og það er gjaldmiðillinn okkar. Það er pólitískt val að bjóða almenningi örgjaldmiðil sem veldur þessari stöðu. Ég spyr mig að því hvers vegna ekkert er gert til að ráðast að rót vandans sem er íslenska örmyntin sem sveiflast með þeim hætti að það framkallar nánast sjóveiki yfir þjóðina. Ég fékk þær upplýsingar frá Seðlabankanum í lok árs að rúmur fjórðungur lántakenda var þá með óverðtryggð lán á breytilegum vöxtum. Þetta eru þá þau heimili sem hafa tekið á sig raðhækkanir á vöxtum af fullum þunga. Við þennan hóp bætast svo um 4.500 heimili sem eru með lán sem koma til endurskoðunar á þessu ári. Hinn svokallaði sveigjanleiki leikur mörg heimilin grátt núna, en á sama tíma eru um 250 íslensk fyrirtæki sem hafa valið að yfirgefa krónuna og gera upp í öðrum gjaldmiðli til að geta rekið fyrirtæki sín á stöðugum grundvelli, laus við þessar sveiflur. Þessum fyrirtækjum fjölgar ár frá ári. Hin stóra pólitíska spurning hlýtur þess vegna að vera: Hvers vegna þarf almenningur einn að taka á sig kostnaðinn af krónunni?