Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 55. fundur,  25. jan. 2023.

störf þingsins.

[15:26]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Í dag fer fram aðalmeðferð í máli Frigus gegn íslenska ríkinu og félaginu Lindarhvoli, en það nafn kann að hringja einhverjum bjöllum hér í þingsal en kannski ekki forsetabjöllunni. Lindarhvoll var stofnaður af hæstv. fjármálaráðherra til að koma í verð þeim eignum sem ríkissjóði féllu í skaut eftir samninga við slitabú föllnu bankanna. Fékk hæstv. ráðherra trúnaðarvin sinn til þess að stýra félaginu. Við söluna vöknuðu fjölmargar spurningar og var kallað eftir skýrslu Ríkisendurskoðunar um hvort rétt hefði verið staðið að þessu vandasama verki. Sigurður Þórðarson, sem settur var ríkisendurskoðandi vegna vanhæfis þáverandi ríkisendurskoðanda, skilaði Alþingi og ráðherra skýrslu um hvers hann hefði orðið áskynja við rannsóknina, en núverandi og fyrrverandi forseti Alþingis hafa enn ekki leyft birtingu þessarar skýrslu þrátt fyrir ákvörðun forsætisnefndar frá því í fyrra þar um. Hvað veldur þessu mun mögulega koma í ljós á morgun þegar umræddur Sigurður Þórðarson mun bera vitni í áðurnefndu einkamáli Frigus gegn Lindarhvoli vegna þess hvernig staðið var að sölu þessara eigna almennings.

Dómsmálið snýst um ákvarðanir stjórnenda Lindarhvols um hverjir fengu að kaupa og ekki síður á hvað. Þá vill svo ótrúlega til að stjórnandi Lindarhvols er fenginn ad hoc til að starfa sem ríkislögmaður og annast þannig vörn íslenska ríkisins og Lindarhvols gagnvart sókn gegn hans eigin ákvörðunum. Ríkislögmaður kom fram í fjölmiðlum og sagði alvanalegt að embættið sækti sér sig lögmann úti í bæ til að reka einstaka mál fyrir embættið en skautaði fram hjá því að umræddur lögmaður, handvalinn trúnaðarmaður hæstv. fjármálaráðherra, hefur beinna hagsmuna að gæta við niðurstöðu málsins enda er lögmaðurinn sjálfur lykilvitni í málinu.

Herra forseti. Hvar í heimi hér gæti verið uppi viðlíka staða og við sjáum nú eiga sér stað í dómskerfinu af hálfu ríkisvaldsins?