153. löggjafarþing — 55. fundur, 25. jan. 2023.
orð þingmanns í störfum þingsins.
Virðulegi forseti. Mig langar að taka undir með hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttir og mig langar líka að ræða örlítið um það, varðandi samræmingu á þessum lögum, að vonandi þarf ekki að benda á að Ísland er eyja. Okkar löggjöf mun aldrei verða eins og löggjöf þeirra landa sem við berum okkur saman við. Það er bara hreinlega ómögulegt. Ég held að það sé mjög mikilvægt að velta örlítið fyrir sér eðli hlutanna þannig að þetta sé skýrt.