153. löggjafarþing — 55. fundur,  25. jan. 2023.

orð þingmanns í störfum þingsins.

[15:40]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Það er ótrúlega ánægjulegt að þeir sem nota liðinn fundarstjórn og störf þingsins bara með hárréttum hætti komi hérna upp til að vanda um fyrir okkur hinum. Ég þakka hv. þingmönnum kærlega fyrir það. Án þess að ætla að fara í efnislegar hártoganir um útlendingalöggjöfina, þar sem hv. þingmenn eru enn á öndverðum meiði þrátt fyrir að hafa skeggrætt málið, ekki bara í tvo eða þrjá daga eða í tveimur umræðum heldur í fjölmörg skipti, þá spörum við það kannski bara fyrir efnislega umræðu eins og hv. þingmenn komu inn á.

Hins vegar er auðvitað rangt með farið þegar hv. þingmaður kemur hingað upp og sakar mig um að hafa kallað hv. þingmenn fífl og fávita. Ég átta mig á því að skriflegt inntak ræðunnar er ekki komið á netið en hv. þingmanni er í lófa lagið að hlusta á upptökuna og heyra þar hvaða ummæli ég hafði uppi. Ég vænti þess að fá afsökunarbeiðni frá hv. þingmanni varðandi þessi ummæli því að ég tók sérstaklega fram að þessi umræða hefði verið góð og gagnleg og að þið væruð ekki — ekki að ég þurfi að taka það fram — fífl og fávitar. Þetta var nú meira í gamni sagt heldur en annað.