153. löggjafarþing — 55. fundur,  25. jan. 2023.

orð þingmanns í störfum þingsins.

[15:42]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Virðulegur forseti. Rétt hérna í framhaldi af síðustu orðum hv. þm. Diljár Mistar Einarsdóttur varðandi það að búið sé að skeggræða þetta útlendingafrumvarp, ekki bara einu sinni, ekki tvisvar heldur mun oftar, þá er kannski rétt að nefna líka að það er margoft búið að skila inn umsögnum við það frumvarp á ólíkum stigum í samráðsgátt, til Alþingis, sem allar eru á einn veg; allar benda á atriði sem ekki ganga upp í þessu frumvarpi. Ef við ætlum að standa vörð um barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, ef við ætlum að uppfylla flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, ef við ætlum bara almennt að vera land sem virðir mannréttindi, líka þess fólks sem er á flótta, þá gengur þetta frumvarp einfaldlega ekki upp. Ég er nú kannski að fara inn á jarðsprengjusvæði að taka fífla- og fávitaumræðuna, en það tómlæti sem stjórnarliðar hafa sýnt umsögnum Rauða krossins, Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, Barnaheilla, öllum þessum sérfræðingum — þeir hópar eru greinilega ekki mjög hátt skrifaðir hjá stjórnarliðum þrátt fyrir að vera helstu sérfræðingar í þessum málaflokki.