orð þingmanns í störfum þingsins.
Virðulegi forseti. Ég held að fólk hér inni þurfi að passa sig. Það er auðvelt að tala undir rós. Það er auðvelt að vera með setningar og segja svo: Ég er ekki að kalla þig þetta. Þá ertu samt að segja að fólk sem berst fyrir mannréttindum og því að alþjóðlegir sáttmálar séu virtir falli undir þessa skilgreiningu sem hv. þingmaður gaf. Hv. þingmaður krafði mig um afsökunarbeiðni. Ég gæti rétt eins beðið hv. þingmann um slíka beiðni fyrir að hafa kallað okkur þetta. En ég held að best sé fyrir okkur þingmenn að læra af þessu og passa okkur að nýta sem minnst það að tala undir rós eða svona orðaleiki hér í ræðustól Alþingis.