orð þingmanns í störfum þingsins.
Virðulegi forseti. Mig langar að koma örlítið inn á það að hér áðan var talað eins og umræðan um útlendingafrumvarpið væri bara kláruð. Hún er það engan veginn. Það eru ótal atriði sem mér þykir enn þá ósvarað og mig langar að fá mun nánari skýringar á og ég mun óska eftir þeim svo sannarlega í þeirri umræðu sem hér verður haldið áfram á eftir. Ég skora á hv. þingmenn að taka þátt í umræðunni því hún er mikilvæg. Það er mikilvægt að klára umræðuna þannig að það sé búið að velta við öllum þeim steinum í þessu frumvarpi sem þarf að velta við. Mér þykir of mörgum spurningum ósvarað enn.