153. löggjafarþing — 55. fundur,  25. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[17:32]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður giskaði réttilega á spurningu mína sem ég náði ekki einu sinni að bera upp. Hún var sú einmitt hvort þingmaðurinn hefði hugmynd um það hvert vandamálið er þegar kemur að möguleikum fólks frá ríkjum utan EES til að koma hingað og vinna og hverjar séu lausnirnar á þeim. Þar eru nefnilega, alveg eins og í þessu blessaða hæliskerfi, mörg vandamál sem þarf engar lagabreytingar til að leysa. Það eru ákveðin kerfisbundin vandamál, eins og hv. þingmaður nefnir, í tengslum við viðurkenningu menntunar, viðurkenningu starfsréttinda og annað sem hægt væri að leysa. Hins vegar grunar mig líka, líkt og hv. þingmann, að þessi umræða sé það sem hv. þingmaður kallar fjarvistarsönnun. Ef vandamálið er það að fólk sé að leita í hæliskerfið af því að það eru engir aðrir möguleikar — sem er rétt, það eru engir aðrir möguleikar. Reyndar er fólk að leita í hæliskerfið vegna þess að það er þangað sem það á að leita í þeirri stöðu sem það er. Það er bara svoleiðis. Fólk er ekkert að fara vitlausa leið eins og stundum er látið í veðri vaka. Hins vegar hefur það enga aðra möguleika heldur. Ef það myndi t.d. bara átta sig á því að hælismeðferðin er ekkert sérstaklega auðveld leið hingað inn þá gæti það kannski reynt einhverja aðra möguleika. Það er ekkert annað í boði. Ef meiri hlutinn telur raunverulega, eða bara einhverjir, að það myndi einhvern veginn fækka í hópi þeirra sem eru að koma hingað og langar til að vinna en fara að þeirra mati ranglega í hæliskerfið af hverju eru þau ekki löngu búin að laga þetta þá? Þau koma fram með þessar hugmyndir, búa til þessar dyr sem þau vilja hafa. Myndu þau þá ekki leysa þetta vandamál þannig í stað þess að loka þessum dyrum fyrst og ætla svo kannski að opna einhverjar aðrar dyr einhvern tímann seinna, í stað þess að opna þær bara og sjá hvort þetta jafnist ekki bara svolítið út? Þetta er mjög öfugsnúið í mínum huga.