Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 55. fundur,  25. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[17:48]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Það er ofboðslega gaman að vera svona vinsælasta stelpan á ballinu og mér finnst líka rosalega gaman að vera með ykkur hérna í vinnunni. Mér heyrist að þessi beiðni og krafa um viðveru hæstv. ráðherra sé rækilega komin aftur til skila í dag og því langar mig að hvetja til þess að við höldum áfram með þessa þörfu og gagnlegu umræðu um útlendingamál hér í þingsal.