Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 55. fundur,  25. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:54]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Í ljósi þess að eini þingmaðurinn sem er hér í salnum fyrir utan þingflokk Pírata er Diljá Mist Einarsdóttir langar mig til að hrósa henni sérstaklega fyrir að vera hérna með okkur og taka þátt í þessari umræðu sem er svo brýn. Ég vil líka nota tækifærið til að hvetja aðra þingmenn, hvort tveggja stjórnarandstöðu og stjórnar, til að koma og taka þátt í þessu. Umræðan er ekki búin, henni er ekki lokið. Það er nóg eftir, komiði og tölum um þetta.